Guðmunda Auður Guðjónsdóttir (Sævar Jónasson)
Stjarnan og ÍBV mættust í seinni leik dagsins í Olís deild kvenna en leikurinn fór fram í Hekluhöllinni í Garðabæ gestirnir frá Vestmannaeyjum voru aldrei í vandræðum með botnliðið í dag og lönduðu tíu marka sigri 26-36. ÍBV er við topp deildarinnar og Stjarnan er á botninum með aðeins eitt stig. Atkvæðamest í liði heimstúlkna var Vigdís Arna Hjartardóttir en hún skoraði 8 mörk í dag. Atkvæðamest hjá ÍBV var Alexandra Ósk Viktorsdóttir átta stykki.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.