Hún hefur verið besti leikmaður deildarinnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

ÍR vann sannfærandi sjö marka sigur á Stjörnunni í 8.umferð Olís-deildar kvenna á laugardaginn, 32-25 eftir að hafa verið átta mörkum yfir í hálfleik. 

Sif Hallgrímsdóttir markvörður ÍR og Sara Dögg Hjaltadóttir leikstjórnandi liðsins fóru á kostum í leiknum og var farið yfir frammistöðu þeirra í Handboltahöllinni í gærkvöldi. 

,,Sif hefur átt frábærar frammistöðu og í þessum leik sérstaklega. Hún er að verja þrjú víti og auðvitað er ÍR að spila mjög öfluga vörn og hún fyrir aftan að taka sína bolta og svo er hún að taka þessa svokölluðu bónus bolta, víti og hraðarupphlaup. Hún átti frábæra frammistöðu í þessum leik,” sagði Rakel Dögg Bragadóttir um frammistöðu Sifjar.

Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði 12 mörk í leiknum og stýrði sóknarleik ÍR eins og fyrri daginn.

,,Þetta er fjórði leikurinn þar sem hún er að skora 12 mörk og fimm sinnum hefur hún skorað meira en 10 mörk. Síðan er hún að skapa í kringum 10 færi í leik, þetta er yfirleitt tröllatvenna hjá henni,” sagði Ásbjörn Friðriksson áður en Rakel Dögg tók undir hans orð.

,,Hún hefur verið frábær, hún var góð á síðasta tímabili en það er eitthvað sem hún hefur gert í sumar sem aðrir leikmenn ættu að spyrja hvað var. Á þessu tímabili hefur hún verið algjörlega frábær og það má alveg segja að hún hafi verið besti leikmaður deildarinnar hingað til,” sagði Rakel.

ÍR fær verðugt verkefni annað kvöld þegar liðið mætir toppliði Vals í 9.umferð Olís-deildar kvenna í N1-höllinni að Hlíðarenda.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top