Álaborg (HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)
8.umferðin í Meistaradeild Evrópu hófst í gær með fjórum leikjum. Bæði Bjarki Már Elísson og Sigvaldi Björn Guðjónsson eru að glíma við meiðsli og léku því ekki með sínum liðum þegar Veszprém og Kolstad mættust í Ungverjalandi. Stórleikur gærdagsins var án efa leikur PSG og Barcelona sem Barcelona unnu 27-30. Viktor Gísli kom lítið við sögu og náði ekki að verja skot í leiknum. 8.umferðin heldur síðan áfram í dag með fjórum leikjum. PSG - Barcelona 27-30 Álaborg - Kielce 34-27 Veszprém - Kolstad 42-34 RK Zagreb - Magdeburg 35-43

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.