Eva Guðrúnardóttir Long - wFH (Brynja T.)
Eva Guðrúnardóttir Long hefur framlengt samning sinn við FH til loka tímabils 2028. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum á dögunum. ,,Eva sem er 18 ára gömul örvhent skytta sem hefur staðið sig virkilega vel í Grill 66 deildinni á þessu tímabili og er einn af markahæstu leikmönnum liðsins," segir í tilkynningu félagsins. ,,Við hlökkum til að sjá Evu bæta sig enn frekar á fjölum Kaplakrika á næstu árum." Eva hefur skorað 28 mörk í níu leikjum fyrir FH í Grill66-deildinni í vetur en liðið er 4.sæti deildarinnar með átta stig. Þá er FH komið í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins og mætir þar Val.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.