Í kvöld mættust Víkingur og Fjölnir í Safamýri í Grill 66 deild kvenna.
Víkings stelpur mættu ákveðnari til leiks og voru betri í byrjun leiks og komust í 3-1. Eftir það var þónokkuð jafnræði í fyrri hálfleik og var staðan 8-8 eftir 20 mínútna leik. Víkings stelpur voru klókari og sterkari síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik og fóru inn til búningsherbergja með 3 marka forskot og var 13-10 í hálfleik.
Í seinni hálfleik voru Víkings stelpur mun betri til að byrja með og fóru í 17-12. Eftir það hélst munurinn lengi vel í 5 mörkum. Og var það eiginlega út leikinn. En að lokum endaði leikurinn 26-22. Sanngjarn og öruggur sigur Víkings stelpna á heimavelli í Safamýri.
Hjá Víking var Valgerður Elín Snorradóttir með stórleik og setti hún 11 mörk. Þyrí Erla varði 11 skot.
Hjá Fjölni var Berglind Benediktsdóttir markahæst með 9 mörk. Signý Pála Pálsdóttir varði 7 skot á mínum sínum gömlu samherjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.