Perla Ruth Albertsdóttir gæti snúið til baka í lið Selfoss í Olís-deild kvenna eftir barnsburð á næstu vikum. Þetta staðfesti Eyþór Lárusson þjálfari Selfoss í samtali við Handkastið. Perla Ruth eignaðist sitt annað barn í lok október á síðasta ári og er öll að koma til baka. ,,Það er enginn ákveðinn tímarammi en henni líður vel. Við vonumst til að hún snúi til baka á næstu vikum," sagði Eyþór í samtali við Handkastið. Perla sem er uppalin á Selfossi hefur leikið með liðinu síðustu þrjú tímabil en hún lék þar áður með Fram. Perla hefur verið lykilkona í íslenska landsliðinu undanfarin ár og mun endurkoma hennar í lið Selfoss klárlega styrkja liðið í þeirri botnbaráttu sem liðið er í, í Olís-deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.