Anna Lára leikur ekkert meira á tímabilinu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Anna Lára Davíðsdóttir (Sævar Jónasson)

Anna Lára Davíðsdóttir leikmaður Stjörnunnar leikur meira með liðinu á tímabilinu en hún er að glíma við brjósklos. Þetta staðfesti Arnar Daði Arnarsson aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í samtali við Handkastið.

Anna Lára hefur ekkert leikið með Stjörnunni frá því um miðjan nóvember en Arnar Daði sagði það hafa einfalda skýringu. Anna Lára hafi verið að glíma við bakmeiðsli undanfarin ár og í HM-pásunni hafi brjósklosið versnað.

Anna Lára gekkst undir aðgerð í vikunni og mun ekkert leika meira með liðinu á tímabilinu. Hún gekk í raðir Stjörnunnar fyrir tímabilið 2023/2024 og er því á sínu þriðja ári hjá félaginu. Þar áður lék hún með Haukum en hún er uppalin hjá Gróttu á Seltjarnarnesi.

Hún lék níu leiki með Stjörnunni í Olís-deild kvenna fyrir áramót og skoraði í þeim leikjum sjö mörk.

Stjarnan er með fimm stig í harðri fabllaráttu við Selfoss sem er á botni deildarinnar með fjögur stig þegar fjórar umferðir eru eftir. Stjarnan og Selfoss mætast í þriðju síðustu umferð deildarinnar sem gæti reynst úrslitaleikur um hvort liðið fellur beint og hvort liðið fer í umspil um öruggt sæti í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top