Lilja Ágústsdóttir og Thea Imani Sturludóttir voru fjarri góðu gamni í liði Vals í fyrsta leik liðsins á nýju ári er liðið heimsótti Fram í 12.umferð Olís-deildar kvenna á laugardaginn. Valur vann leikinn sannfærandi 30-19. Valur er á toppi deildarinnar ásamt ÍBV en liðið mætir KA/Þór í lokaleik 13.umferðarinnar í dag. Lilja gekkst undir aðgerð á hné og missti þar af leiðandi af heimsmeistaramótinu. Anton Rúnarsson þjálfari Vals segir að hún sé öll að koma til baka. ,,Lilja er hægt og rólega að koma sér af stað aftur en verður samt sem áður ekki með okkur í næstu leikjum. Staðan á Theu er hinsvegar óljós. Hún er að glíma við meiðsli aftan í læri og það er erfitt að segja nákvæmlega hvenær hún snýr aftur á völlinn,” sagði Anton í samtali við Handkastið Thea glímdi við meiðsli í byrjun tímabils og missti af fyrstu leikjum Vals á tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.