Með óbragð í munninum eftir síðasta tap gegn ÍBV
Sævar Jónasson

Eftir sigur á Val í dramatískum leik í lokaumferðinni fyrir heimsmeistaramótið tyllti kvennalið ÍR sér á topp Olís-deildar kvenna ásamt Val og ÍBV á meðan HM kvenna stóð yfir.

Liðið hefur hinsvegar tapað þremur leikjum í röð í kjölfarið og er nú sex stigum á eftir Val og ÍBV. ÍR fær topplið ÍBV í heimsókn í Skógarselið í kvöld en leikurinn hefst klukkan 18:00.

,,Við erum í lægð bara eins og staðan er í dag. Við erum ekki að byrja leikina nægilega vel og þurfum að vinna okkur inní leikina og oft að fara vinna upp forskot. Við erum að lenda undir og þurfum síðan að eyða mikilli orku að koma okkur til baka síðan þegar mómentin eru til staðar að koma okkur yfir þá nýtum við það ekki. Við erum ekki alveg að ná að setja puttann á það hvers vegna við byrjum ekki eða náum ekki að kveikja á neistanum frá fyrstu mínútu sem við vorum að gera oftast í leikjunum fyrir áramót,” sagði Grétar Áki Andersen þjálfari kvennalið ÍR í samtali við Handkastið.

,,Við erum lið sem þrífst á háu orkustigi og að geta keyrt grimmt í bakið á liðum og spilað hörkuvörn. Mér finnst svona okkar einkenni ekki vera skína í gegn núna og það er eitthvað sé ég þarf að taka ábyrgð á hvort þetta sé undirbúningurinn minn sem gerir það að verkum. En það er hörkutörn framundan og deildin er jöfn og mér finnst einhvernveginn allar geta unnið alla.”

Eins og fyrr segir fær ÍR, topplið ÍBV í heimsókn. Stutt er síðan liðin mættust í Vestmannaeyjum en þann leik vann ÍBV með tólf mörkum 36-24.

,,Ég geri ráð fyrir svipuðu uppleggi hjá ÍBV sem eru mikið að draga frá og fara maður á mann fyrir Söndru og síðan eru þær mikið að klippa inn Birnu eða leita af stöðu fyrir hana sem ég þarf að leysa betur eftir seinasta leikinn okkar.”

,,Annars verður þetta gríðarlega spennandi leikur þar sem við erum enn með svolítið óbragð í munninum eftir þann leik. Þar byrjum við vel fyrstu 10 mínúturnar síðan kemur bara hrun. Við ætlum okkur að gera þetta að spennuleik reyna að stöðva þeirra sterku leikmenn sem komu að 20 mörkum minnir mig seinast og reyna fá gildin okkar inní þann leik,” sagði Grétar Áki að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top