Hafdís Renötudóttir byrjaði árið vel með toppliði Vals í Olís-deild kvenna í ellefu marka sigri liðsins á Fram í Úlfarsárdalnum um síðustu helgi. Rætt var um frammistöðu Hafdísar og Valsliðsins sem vann leikinn 30-19 í Handboltahöllinni á mánudagskvöldið en þátturinn er sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans þar sem Hörður Magnússon stýrir skútunni. Hörður spurði Rakeli Dögg Bragadóttur einn af tveimur gestum sínum í síðasta þætti einfalda spurningu varðandi Hafdísi. ,,Hafdís Renötudóttir, hún er með 46,4% markvörslu og hún ver 13 af 28 sem koma á markið. Getur þú, Rakel Dögg sagt mér afhverju hún er ekki úti í atvinnumennsku? Hún er kannski í atvinnumennsku í Val en þá er ég að meina, að spila með erlendu liði.” Svar Rakelar má sjá í myndskeiðinu hér að neðan. Valur fær KA/Þór í heimsókn í 13.umferð deildarinnar í dag klukkan 15:30 í lokaleik umferðarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.