Þjálfarabreytingar á Ásvöllum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Stefán Arnarson ((Kristinn Steinn Traustason)

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Stefán Arnarson skrifað undir nýjan samning við Hauka og þar með framlengt samningi sínum við félagið. Stýrir Stefán því liði Hauka áfram næstu árin en hann tók við liðinu sumarið 2023 og er að klára sitt þriðja tímabil hjá Haukum.

Hjá Haukum hefur Stefán verið einn af tveimur aðal þjálfurum því Díana Guðjónsdóttir hefur einnig verið þjálfari liðsins með Stefáni frá árinu 2023. 

Díana Guðjónsdóttir verður hinsvegar ekki áfram í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna hjá Haukum og sagði hún í samtali við Handkastið að hún myndi hætta hjá félaginu eftir tímabilið. Díana var áður aðstoðarþjálfari kvennaliðs Hauka bæði þegar Gunnar Gunnarsson og Ragnar Hermannsson stýrðu liðinu. Auk þess hefur hún verið yfirþjálfari hjá Haukum og stýrt yngri flokkum félagsins. Það verður fróðlegt að sjá hvernig málin þróast á Ásvöllum og hver verður aðstoðarþjálfari Stefáns með kvennalið Hauka á næsta tímabili.

Eins er spurning hvað Díana Guðjónsdóttir tekur sér fyrir hendur. Haukar eru með 19 stig í Olís-deild kvenna en liðið er ríkjandi bikarmeistari frá síðustu leiktíð og verður í eldlínunni í Final 4 bikarúrslitahelginni í lok mánaðarins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top