8-liða úrslitin í Powerade bikarkeppni kvenna hefjast í kvöld þegar Fram fær ÍR í heimsókn í Lambhagahöllina klukkan 19:30. 8-liða úrslitin dreifast á þrjá daga en tveir leikir fara fram annað kvöld og 8-liða úrslitunum lýkur síðan á miðvikudagskvöldið með einum leik. Af þeim átta liðum sem eftir eru í Powerade bikarkeppni kvenna eru þrjú lið úr Grill66-deildinni sem er afar athyglisvert. Grótta gerði sér lítið fyrir og sló út ÍBV í 16-liða úrslitunum og þá sló FH út Stjörnuna í sömu umferð. Þá er Víkingur einnig í keppninni en þær slóu út Grill66-deildarlið Fjölnis í 16-liða úrslitum með einu marki, 24-23. 8-liða úrslitin í Powerade-bikar kvenna: Mánudagur: Þriðjudagur:
19:30 Fram - ÍR
18:00 Víkingur - Haukar
19:30 Grótta - KA/Þór
Miðvikudagur:
20:00 FH - Valur

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.