Dramatík þegar Fram tryggði sér í bikarúrslitahelgina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Eftir að hafa verið sjö mörkum undir í hálfleik 17-10 jafnaði ÍR metin gegn Fram í 8-liða úrslitum Powerade-bikars kvenna þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum. Það dugði hinsvegar ekki til því Harpa María Friðgeirsdóttir tryggði Fram sigurinn með marki í lokasókn Fram.

ÍR fékk tækifæri til að jafna en töpuðu boltanum í lokasókninni og eins marks sigur Fram staðreynd sem er þar með fyrsta liðið til að tryggja sér í bikarúrslitahelgina kvennamegin. Lokatölur 26-25.

Fram náði mest átta marka forystu í leiknum í stöðunni 15-7.

Harpa María og Ásdís Guðmundsdóttir voru markahæstar í liði Fra með sex mörk hvor en hjá ÍR var Vaka Líf Kristinsdóttir markahæst með átta mörk. Sylvía Sigríður Jónsdóttir kom næst með fimm mörk en hún skoraði jöfnunarmark ÍR undir lokin sem dugði ekki til.

Segja má að fyrri hálfleikurinn hafi gert verkefni nánast ómögulegt fyrir ÍR sem sýndu karakater og seiglu og komust hægt og bítandi inn í leikinn. Ingunn María kom frábær inn í mark ÍR og varði 8 af 16 skotum sem hún fékk á sig í leiknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top