Haukar í undanúrslit eftir sigur í Safamýrinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katrín Tinna Jensdóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)

Kvennalið Hauka er annað liðið til að tryggja sér í undanúrslit Powerade-bikarsins eftir átta marka sigur á Grill66-deildarliði Víkings í Safamýrinni í kvöld. Lokatölur 21-29 Haukum í vil eftir að staðan hafi verið 11-16 í hálfleik.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir fór á kostum í liði Hauka í leiknum í kvöld og skoraði alls tíu mörk. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir kom næst með fimm mörk og Inga Dís Jóhannsdóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir komu næstar með þrjú mörk hvor.

Hjá Víkingi var Hildur Guðjónsdóttir markahæst með átta mörk og Auður Brynja Sölvadóttir með fimm mörk. 

Elísa Helga Sigurðardóttir varði 11 skot í marki Hauka og Sara Sif Helgadóttir sjö. Klaudia Kondras varði 13 skot í marki Víkings og Þyri Erla Sigurðardóttir eitt skot.

Haukar eru þar með komnar í undanúrslit ásamt Fram. Það skýrist í kvöld hvort Grótta eða KA/Þór bætast við og á morgun mætast síðan FH og Valur.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top