Inga framlengir við Aftureldingu
Afturelding)

Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir hefur ákveðið að framlengja samning sinn við Grill66-deildarlið Aftureldingar til næstu tveggja ára. Félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðla síðu sinni.

Inga sem er 23 ára gömul kom til Aftureldingar árið 2024 frá HK og hefur síðan þá verið einn besti markmaður Grill66 deildarinnar en á þessu tímabili hefur hún verið að verja að meðaltali 10 skot í leik.

Afturelding er á botni Grill66-deildarinnar með 9 stig þegar sex umferðir eru eftir af tímabilinu en liðið er þó einungis einu stigi á eftir FH, Fjölni, Val 2 og Fram 2 sem öllu eru með 10 stig. 

,,Við erum gríðarlega ánægð með að Inga hafi ákveðið að framlengja samninginn sinn við félagið," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top