Ásta Björt Júlíusdóttir - wÍBV (Sævar Jónasson)
Það var ótrúleg atvik sem átti sér stað í leik ÍBV og fram í 15.umferð Olís-deildar kvenna í síðustu viku sem ÍBV vann að lokum með einu marki 33-32 í hörkuleik. Ásta Björt Júlíusdóttir leikmaður ÍBV fékk tvær mínútur fyrir skot í andlit varnarmanns Fram, Sóldísar Rósar Magnúsdóttur í miðjum leik. Atvik sem betur fer sést ekki oft í handbolta en getur vissulega gerst. Handboltahöllin sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans vakti athygli á þessu sóknarbroti Ástu Bjartar í leiknum. ,,Mér finnst svo erfitt að horfa á svona. Ég veit það 100% að það er ekki einn þráður í mér sem heldur að hún sé að gera þetta viljandi. Hún er ekki að bomba í andlitið á henni viljandi, það er alveg klárt. En maður veltir fyrir sér ,hver er ábyrgð sóknarmannsins þarna? Þarna stendur varnarmaður í fullkomlega eðlilegri varnarstöðu, kyrr og er ekki að færa sig inn í skotlínuna og það er bara hlaðið í eina bombu. Þetta getur verið stórhættulegt. Ef við værum að horfa á uppstillt fríkast eða vítakast, þá væri þetta alltaf beint rautt spjald. Það er líklega ekki til í reglunum að þetta eigi að vera rautt spjald en mér finnst þetta geta verið hættulegt," sagði Rakel Dögg Bragadóttir meðal annars í Handboltahöllinni. Einar Ingi Hrafnsson tók undir orð Rakelar um að þetta gæti verið stórhættulegt og haft afdrifarík áhrif fyrir þann leikmann sem verður fyrir þessu. 16.umferðin í Olís-deild kvenna hefst í kvöld með leik Fram og Selfoss klukkan 18:00 í Úlfarsárdalnum. Atvikið er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.