Engin ákvörðun tekin hvað tekur við hjá Hilmari
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hilmar Guðlaugsson (HK)

HK tilkynnti í janúar að þjálfarabreytingar yrðu á kvennaliði liðsins eftir tímabilið en liðið er á toppi Grill66-deildarinnar í harðri baráttu við Gróttu um laust sæti í Olís-deild kvenna á næsta tímabili.

Hilmar Guðlaugsson sem þjálfað hefur liðið frá árinu 2023 hefur ákveðið að segja þetta gott og hættir með liðið eftir tímabilið. Handkastið heyrði í Hilmari og spurði hann út í ástæðuna fyrir því að hann ætli að segja þetta gott eftir tímabilið.

,,Ég er búsettur á Selfossi og vinn þar sem kennari í fullu starfi. Undanfarin þrjú ár hef ég verið að keyra á milli sem hefur þýtt mjög langir vinnudagar og takmarkaður tími með fjölskyldunni. Eftir þetta tímabil fann ég að komið er að tímamótum," sagði Hilmar.

,,Nú vil ég forgangsraða því að vera meira heima og eiga fleiri og betri stundir með fjölskyldunni. Ég hef ekki tekið ákvörðun um hvað tekur við eftir tímabilið, en ljóst er að ég mun ekki halda áfram með þjálfun sem krefst reglulegra ferða til Reykjavíkur. Ég er hins vegar opinn fyrir því að skoða verkefni sem samræmast betur fjölskyldulífi og starfsaðstæðum hér á Selfossi," sagði Hilmar í samtali við Handkastið.

HK tekur á móti Aftureldingu í Kórnum í kvöld í Grill66-deildinni en leikurinn hefst klukkan 19:30. 90 mínútum áður mætast Víkingur og Grótta í Safamýrinni í sömu deild.

,,Auðvitað er það draumurinn að enda með liðið í Olís, það var markmiðið þegar ég tók við að koma þeim upp. Það hafa verið stöðugar framfarir síðan ég tók við, algjörlega nýtt lið sem þurfti að byggja upp eftir fall úr Olís. Við erum að byggja á ungum uppöldum leikmönnum sem æfa vel og hafa mikinn metnað, eins hefur verið mikilvægt að fá inn eldri og reyndari leikmenn sem hafa hjálpað mikið til. Það eru sex leikir eftir og þetta er algjörlega í okkar höndum að klára þetta og koma liðinu aftur í Olís deildina," sagði Hilmar að lokum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top