Guðmunda Auður Guðjónsdóttir (Sævar Jónasson)
Stjarnan tók á móti ÍR í 16.umferðar Olís deildar kvenna í Garðabænum í dag. ÍR byrjaði leikinn betur og var komið með fjögurra marka forskot í upphafi leiksins en þá tóku Stjörnukonur við sér og áttu flottan lokakafla í fyrri hálfleik og leiddu með þrem mörkum í hálfleik 15-12. Grétar Áki þjálfari ÍR hefur farið vel yfir málin með sínum stelpum í hálfleik því þær miklu grimmari til leiks í síðari hálfleik. ÍR var búið að vinna upp forskot Stjörnunnar fljótt og örugglega og komnar með forystu eftir um 10 mínútna leik í síðari hálfleik. Jafnræði var með liðunum en á síðustu tíu mínútum síðari hálfleik þá sigu ÍR fram úr og unnu að lokum fjögurra marka sigur 27-31. Sara Katrín Gunnarsdóttir var markahæst hjá Stjörnunni í dag með 7 mörk en hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með 13 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.