
Valgerður Arnalds (Sævar Jónasson)
Fram tók á móti Selfoss í fyrsta leik 16.umferðar Olís deildar kvenna í kvöld í Úlfarsárdalnum. Leikurinn var jafn í stöðunni 2-2 en þá gáfu Fram stelpur í og skildu Selfoss eftir. Fram var komið með fimm marka forskot um miðbik fyrri hálfleiks og leiddu í hálfleik 15-9. Þær héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik og bættu jafnt og þétt í forskotið og munaði heldur betur um tapaða bolta en Selfyssingar töpuðu helmingi fleiri boltum í kvöld heldur Fram eða 24 talsins. Lokatölur í leiknum yrðu fimmtán marka sigur Fram, 34-19 og eru þær með sigrinum komnar í 3.sæti deildarinnar með 17 stig en Selfoss situr áfram á botninum. Hulda Dagsdóttir var markahæst í liði Fram í kvöld með 7 mörk en hjá Selfoss var Marte Syverud markahæst með 4 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.