Óðinn fékk kærkomna hvíld í kvöld
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Óðinn Þór Ríkharðsson (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Svissneska úrvalsdeildin er farin af stað eftir EM-pásu en Kadettten Schaffhausen vann sannfærandi þrettán marka sigur á Handball Stafa á heimavelli í kvöld 44-31 eftir að hafa verið 22-14 yfir í hálfleik.

Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmaður Íslands og leikmaður Kadetten Schaffhausen fékk kærkomna hvíld í leiknum og var ekki í leikmannahópi liðsins í leiknum í kvöld. Það var nú eflaust heldur ekki hægt að finna betri mótherja heldur en Handball Stafa til að gefa Óðni frí en Handball Stafa er á botni deildarinnar með þrjú stig eftir 18 leiki.

Óðinn er langmarkahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með 137 mörk en Ariel Pietrasik kemur næstur með 75 mörk.

Kadetten mætir Wacker Thun í næstu umferð á laugardaginn en Wacker Thun er í 4.sæti deildarinnar. Gera má ráð fyrir því að Óðinn verði með liðinu í þeim leik.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top