Systurnar Laufey og Katla atkvæðamiklar í sigri Vals
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katla Margrét Óskarsdóttir (Eyjólfur Garðarsson)

Í dag mættust Valur 2 og Fram 2 á Hlíðarenda í Grill 66 deild kvenna.

Fyrri hálfleikur var gríðarlega jafn og spennandi. Vals stelpur voru þó alltaf hálfu skrefi á undan. Fram stelpur náðu svo að jafna leikinn rétt áður en lokaflaut fyrri hálfleiks gall. 16-16 var staðan í hálfleik.

Í seinni hálfleik var nánast jafnt á öllum tölum fyrstu 15 mínúturnar. Þá áttu Vals stelpur frábæran kafla og náðu að komast 5 mörkum yfir í stöðunni 25-20. Þær héldu einbeitingu út leikinn og sigruðu á afar sannfærandi og öruggan hátt. Lokatölur leiksins urðu 29-22.

Hjá Val voru systurnar Laufey Helga og Katla Margrét atkvæðamestar með samtals 17 mörk. Markvarslan skilaði þeim 12 boltum vörðum.

Hjá Fram var Arna Sif Jónsdóttir með 13 bolta varða. Sara Rún og Birna Ósk voru báðar með 5 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top