
Grótta (Eyjólfur Garðarsson)
Í kvöld mættust Víkingur og Grótta í Grill 66 deild kvenna. Leikið var í Safamýri.
Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að hafa yfirhöndina og jafna metin. Síðustu 7-8 mínútur fyrri hálfleiks voru Víkings stelpur þó skrefi framar og voru yfir í hálfleik 15-14.
Í seinni hálfleik héldu Víkings stelpur forskotinu fyrstu 10 mínúturnar eða svo. Guðrún Þorláksdóttir jafnaði svo metin í 19-19 og eftir það var spennan allsráðandi. Lítið var svo skorað síðustu mínútur leiksins og var meira um varnir og mistök. Auður Brynja Sölvadóttir jafnaði metin í 24-24 þegar rúmar 40 sekúndur voru eftir. Grótta fékk síðan síðustu sókn leiksins og skoraði Karlotta Kjerúlf sigurmark Gróttu úr horninu þegar 2 sekúndur lifðu leiks. Lokatölur 24-25. Grótta er því ennþá á lífi í baráttunni um efsta sætið í deildinni.
Hjá Gróttu var Ída Margrét Stefánsdóttir markahæst með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 8 boltum vörðum.
Hjá Víking var Auður Brynja Sölvadóttir markahæst með 6 mörk. Klaudia varði 11 skot í markinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.