Selfoss verður fyrir mikilli blóðtöku
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Mia Kristin Syverud (Sævar Jónasson)

Botnlið Selfoss í Olís-deild kvenna hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku en lang markahæsti leikmaður liðsins hingað til, Mia Kristin Syverud er handleggsbrotin og óvíst hvort eða hvenær hún snýr til baka á þessu tímabili.

Þetta staðfesti Eyþór Lárusson þjálfari Selfoss í samtali við Handkastið.

Mia Kristin varð fyrir því óláni að handarbrotnaði á vinstri hendi í leik Selfoss gegn Haukum í þar síðustu umferð Olís-deildarinnar og fór í aðgerð beint eftir leikinn. Hún var því ekki með Selfossi í tapinu gegn Fram í Úlfarsárdalnum síðastliðinn fimmtudag.

Mia sem gekk í raðir Selfoss í sumar hefur skorað 89 mörk fyrir Selfoss í vetur þar af 24 mörk úr vítum en næst kemur Hulda Dís Þrastardóttir með 68 mörk þar af 44 úr vítum.

Selfoss er á botni Olís-deildarinnar með fjögur stig eftir 16 umferðir en liðið fær KA/Þór í heimsókn næstkomandi laugardag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top