Stefán Arnarson (Sævar Jónasson)
Einn leikur var á dagskrá í Olís deild kvenna í dag er Haukar og Fram mættust í fyrsta leik 17. Umferðar. Fyrir leik voru liðin jöfn að stigum, bæði með 17 stig, og sátu í fjórða og fimmta sæti deildarinnar. Leikurinn fór fram á heimavelli Hauka, Kuehne+Nagel höllinni. Fram náði snemma tveggja marka forystu en Haukar voru fljót að snúa því og náðu tökum á leiknum. Haukar fóru í hálfleik með þriggja marka forystu, hálfleikstölur 19-16. Haukar voru með yfirburði í seinni hálfleik og var ljóst um miðbik síðari hálfleiks að þetta stefndi í heimasigur. Að endingu vann Haukar 8 marka sigur, lokatölur 35-27. Rakel Oddný Guðmundsdóttir átti stórleik hjá Haukum með 13 mörk af 14 skotum. Sara Sif Helgadóttir átti sömuleiðis stórleik í marki Hauka og var með 15 varða bolta eða um 46,9% markvörslu. Eftir þennan sigur eru Haukar komnar í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.