Er Basti á förum úr Safamýrinni?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sebastian Alexandersson (Sævar Jónasson)

Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti Sebastian Alexandersson verið að stýra síðustu leikjum sínum sem þjálfari kvennaliðs Víkings í Grill66-deildinni.

Sebastian, eða Basti eins og hann er nú oftast kallaður tók við kvennaliði Víkings sumarið 2024 og er á sínu öðru ári með liðið. Í fyrra fór liðið í umspil um laust sæti í Olís-deildinni en tapaði í undanúrslitum umspilsins gegn Stjörnunni sem á endanum hélt sæti sínu í Olís-deildinni.

Basti hafði þjálfað karlalið HK í þrjú ár áður en hann fór í Safamýrina en í tilkynningu félagsins þegar hann tók við liðinu var sagt að Sebastian sé ætlað að koma liðinu upp í efstu deild.

Samkvæmt heimildum Handkastsins er Basti með lausan samning við Víking eftir tímabilið og bendir margt til þess að Sebastian gæti hætt með liðið eftir tímabilið.

Kvennalið Víkings er í 3.sæti Grill66-deildarinnar með 17 stig, þrettán stigum á eftir toppliði HK en það þarf margt að gerast svo Víkingsliðið færist um sæti í deildinni því fimm stig eru í næstu lið á eftir Víkingsliðinu þegar fimm umferðir eru eftir.

Fjölnir og Víkingur mætast í Grill66-deildinni í kvöld í Egilshöllinni klukkan 20:00 en Gunnar Valur Arason þjálfari Fjölnis mun hætta með kvennalið Fjölnis eftir tímabilið líkt og Handkastið greindi frá á dögunum.

Liðið er gott sem búið að tryggja sér sæti í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top