Hafa fengið 16 stigum meira í ár en í fyrra þegar fimm umferðir eru eftir
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Magnús Stefánsson ÍBVw (Egill Bjarni Friðjónsson)

ÍBV eltir Val eins og skugginn í Olís-deild kvenna þegar fimm umferðir eru eftir af deildinni. Valur er á toppi deildarinnar með 28 stig en ÍBV er með 26 stig í 2.sæti deildarinnar.

Magnús Stefánsson tók við liði ÍBV fyrir tímabilið af Sigurði Bragasyni en síðasta ár var þungt og erfitt fyrir Eyjaliðið sem rétt slapp við fall undir lok tímabilsins og sótti einungis 10 stig í deildinni. Ræt var um breytingarnar á Eyjaliðinu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

,,ÍBV hittir á markmann sem er gulls í gildi. Amalie Fröland hefur verið frábær í markinu. Marta Wawrzykowska dettur út hjá þeim snemma á síðasta tímabili og þær voru varla með markvörslu eftir það. Síðan hitta þær sennilega á besta leikmann deildarinnar í Söndru Erlingsdóttur. Þegar þú ert með svona góð púsl og ert síðan með Birnu Berg Haraldsdóttur þá kemur þetta kannski ekkert það mikið á óvart. Ég er samt pínu smeykur hvað þær eru ennþá langt frá Val, bara upp á það að fá alvöru einvígi í úrslitakeppninni. Maður er að vona að maður fái úrslitaeinvígi eins og við vorum að fá milli Fram og Vals þar sem var oddaleikur ár eftir ár," sagði Stymmi klippari.

Ásgeir Jónsson, gestur Handkastsins tók undir orð Klipparans og benti einnig á að Birna Berg Haraldsdóttir hafi átt mjög gott tímabil og þá hafa ungar og efnilegir stelpur í liði ÍBV tekið stórt framfaraskref.

,,Þær fá Söndru sem er stærsta púslið en síðan virðist Birna Berg var í sínu besta standi í mjög langan tíma og hún nýtur góðs af því að hafa Söndru með sér. Síðan eru ungar stelpur sem eru orðnar árinu eldri og farnar að leggja í púkkið. Þær eru að góðum stað en það vita það allir að Valur eru liðið til að vinna og hafa verið lang sterkasta liðið í mörg ár.”

ÍBV vann tíu marka útisigur á KA/Þór í síðustu umferð og fær Stjörnuna í heimsókn í 17.umferð Olís-deildar kvenna á morgun.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top