Bjarki Már Elísson (Ayman Aref / NurPhoto via AFP)
Landsliðsmaðurinn, Bjarki Már Elísson gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk í ellefu marka sigri ONE Veszprém á Gyöngyösi í 8-liða úrslitum ungverska bikarsins. Lokatölur 30-41 Veszprém í vil eftir að Bjarki og félagar hafi leitt 21-12 í hálfleik. Með sigrinum komst Veszprém í undanúrslit bikarkeppninnar en auk Veszprém eru Tatabanya og NEKA komin áfram í undanúrslitin en gera má ráð fyrir því að Janus Daði Smárason og félagar í Pick Szeged komist áfram í undanúrslitin en þeir mæta neðri deildarliði DEAC í lokaleik 8-liða úrslitanna annað kvöld. Um var að ræða fyrsta leik Bjarka Más með Veszprém eftir Evrópumótið sem fram fór í janúar en samningur Bjarka Más við Veszprém rennur út eftir tímabilið. Liðið er á toppi ungversku deildarinnar með stigi meira en Pick Szeged en eiga tvo leiki til góða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.