Natasja Hammer (Sævar Jónasson)
Natasja Hammer skoraði laglegt sirkus mark í tapi Stjörnunnar gegn ÍR í 16. umferð Olís-deildar kvenna um síðustu helgi. Natasja Hammer minnkaði muninn í eitt mark með sirkus marki sínu en ÍR reyndust sterkari aðilinn í lokin og unnu að lokum fjögurra marka sigur 27-31. ,,Þetta er rosalegt mark," sagði Ásbjörn Friðriksson í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í Sjónvarpi Símans. ,,Þetta er upp á þriðju hæð, þetta frábærlega gert," sagði Vignir Stefánsson sem var ásamt Ásbirni gestur í Handboltahöllinni í síðasta þætti. Stjarnan heimsækir ÍBV heim til Vestamannaeyja í 18.umferð Olís-deildar kvenna í dag en liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar með fimm stig, stigi meira en Selfoss sem er á botninum með fjögur stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.