Sylvía Sigríður Jónsdóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)
ÍR hafði betur gegn Stjörnunni í 16.umferð Olís-deildar kvenna um síðustu helgi. Liðið fær topplið Vals í heimsókn í dag þegar 18.umferðin í deildinni lýkur með þremur leikjum. Í sigrinum gegn Stjörnunni um síðustu helgi skoruðu Sara Dögg Hjaltadóttir og Sylvía Sigríður Jónsdóttir samtals 19 mörk fyrir ÍR af þeim 31 sem ÍR liðið skoraði gegn Stjörnunni. Farið var yfir frammistöðu þeirra tveggja í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Sara Dögg skoraði 13 mörk í leiknum og Sylvía Sigríður 6 mörk en hún kom inn í lið ÍR á miðju tímabili eftir meiðsli. ,,Hraðinn og krafturinn í þessum hreyfingum hjá Söru, þetta er það sem við vorum að sjá frá henni fyrir áramót. Hún var endalaust í 11-12 mörkum og það er eðlilegt að það droppi aðeins en gaman að sjá að þessi ára á henni sé kominn aftur. Það sést á stigasöfnuninni að ÍR þarf á henni að halda og að hún dragi vagninn fyrir þær," sagði Ásbjörn Friðriksson meðal annars í Handboltahöllinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.