Hulda Hrönn bragadóttir (Sævar Jónasson)
Síðasta leik dagsins í Olís deild kvenna var að ljúka en hann fór fram á Selfossi þar sem Selfoss og KA/Þór mættust. Þór/KA leiddi mest allan seinni hálfleikinn en staðan í hálfleik var 13-13. KA/Þór mættu sterkari inn í síðari hálfleikinn og lönduðu að lokum 22-26 sterkum útisigri. Atkvæðamestar í liði Selfossar voru Hulda Dís Þrastardóttir en hún skoraði átta mörk. Arna Kristín Einarsdóttir skoraði þrjú og aðrar minna. Atkvæðamestar í liði KA/Þór var Tinna Valgerður Gísladóttir en hún skoraði sex mörk. Bergrós Ásta Guðmundsdóttir og Trude Blestrud Hakonsen skoruðu báðar fimm og aðrar minna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.