Besta heimaliðið mætir liðinu sem er án stiga á útivelli
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Britney Cots - Birna Berg Haraldsdóttir wÍBV (Sævar Jónasson)

Þrír leikir í 17.umferð Olís-deildar kvenna fara fram í dag en umferðin hófst á miðvikudaginn með sannfærandi sigri Hauka gegn Fram. 

Fyrsti leikur dagsins fer fram í Vestmannaeyjum þegar ÍBV tekur á móti Stjörnunni. ÍBV er í 2.sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir toppliði Vals á meðan Stjarnan er í næst neðsta sæti deildarinnar, með stigi meira en Selfoss sem rekur lestina á botni deildarinnar.

ÍBV er með besta heimaleikja árangurinn í Olís-deild kvenna það sem af er tímabili en liðið hefur unnið 7 af 8 leikjum sína á heimavelli en eini tapleikur liðsins á heimavelli kom gegn Val 24.janúar síðastliðinn. Í dag mætir það hinsvegar Stjörnunni sem hefur ekki enn náð í stig á útivelli í átta leikjum.

Selfoss fær KA/Þór í heimsókn en síðasti sigurleikur Selfoss í deildinni kom einmitt gegn KA/Þór fyrir norðan fyrir áramót. Síðan hafa tekið við sjö tapleikir hjá Selfossi sem eins og fyrr segir situr á botni deildarinnar. 

Þriði leikur dagsins er síðan stórleikur ÍR og Vals í Skógarselinum klukkan 13:30 en ÍR vann Val fyrir áramót í hörkuleik.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top