Ída Margrét Stefánsdóttir - wGrótta (Eyjólfur Garðarsson)
Davíð Már Kristinsson var gestur í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem hann valdi fimm bestu leikmenn Grill66-deildar kvenna á þessu tímabili. Fáir ef einhverjir fylgjast jafn vel með Grill66-deildinni eins og Davíð Már sem spilaði lengi vel í næst efstu deild karla á sínum tíma. Hér að neðan má sjá fimm bestu leikmenn Grill66-deildarinnar að mati Davíðs sem er fréttaritari hér á Handkastinu í hlutastarfi. Fimm bestu leikmenn Grill66-deildar kvenna 5. Szonja Szöke - FH 4. Laufey Helga Óskarsdóttir - Valur 2 3. Valgerður Þorsteinsdóttir - HK 2. Tinna Ósk Gunnarsdóttir - HK 1. Ída Margrét Stefánsdóttir - Grótta

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.