Elliði Snær Viðarsson (Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP)
Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 20. umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar eftir frábæra frammistöðu í sjö marka sigri Gummersbach gegn Flensburg-Handewitt í vikunni. Um var að ræða fyrstu umferðina í þýsku úrvalsdeildinni eftir áramót. Elliði Snær gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk úr 11 skotum í 33-26 sigri liðsins. Lið 20.umferðar er þannig skipað: Dominik Kuzmanovic (Gummersbach) Casper U. Mortensen (Hamburg) Eric Johannsson (Kiel) Tobias Grondahl (Fuchse Berlín) Mathias Gidsel (Fuchse Berlín) Lukas Zerbe (Kiel) Elliði Snær Viðarsson (Gummersbach)
14 varðir boltar, 38% markvarsla í sjö marka sigri á Flensburg.
Var markahæstur í liði Hamburg í tveggja marka tapi gegn Liepzig með 8 mörk úr níu skotum.
Sjö mörk og sex stoðsendingar í eins marks útisigri Kiel gegn Rhein-Neckar Lowen.
Hans lang besti leikur í vetur með 12 mörk og tvær stoðsendingar í 14 marka sigri á Rúnari Sigtryggssyni og félögum í Wetzlar.
Gidsel skoraði átta mörk úr tíu skotum og gaf þrjár stoðsendingar í sigrinum á Wetzlar.
Sjö mörk úr átta skotum úr hægra horninu í sigri gegn Rhein Neckar Lowen.
Elliði Snær gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk úr 11 skotum í 33-26 sigri liðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.