Aftureldingar stelpur með mikilvægan sigur í Mosó
{{brizy_dc_image_alt entityId=

wAfturelding (Emma Elísa Jónsdóttir)

Í kvöld mættust Afturelding og Valur 2 í Grill 66 deild kvenna í Mosfellsbæ.

Í byrjun leiks var Afturelding sterkari aðilinn. Þær mættu grimmar og sterkar til leiks. Komust þær í 5-2 meðal annars. Eftir korters leik voru Vals stelpur búnar að snúa taflinu við og voru komnar yfir í 7-9. Þær héldu áfram að vera yfir mest allan fyrri hálfleikinn en Aftureldingar stelpur náðu að snúa leiknum sér í vil á allra síðustu mínútum fyrri hálfleiks. Staðan 13-12 í hálfleik.

Í seinni hálfleik voru Aftureldingar stelpur frábærar og komust meðal annars í 20-14. Það er greinilegt að Andrés Gunnlaugs og Örn Ingi hafa verið með alvöru hálfleiks ræðu og upplegg í hálfleiknum. Mest komust UMFA stelpur 7 mörkum yfir en leikurinn endaði í 4 marka sigri hjá þeim. 30-26 urðu lokatölur.

Mikilvægur og lífsnauðsynlegur sigur hjá Aftureldingu sem gefur þeim án efa mikið fyrir framhaldið.

Hjá UMFA var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 11 mörk. Ingibjörg Gróa varði 11 skot.

Hjá Val 2 var Guðrún Ásta Magnúsdóttir markahæst með 6 mörk. Markvarslan skilaði þeim 8 boltum.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top