Gróttu stelpur komnar á toppinn eftir sigur í uppgjöri toppliðanna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Katrín Arna Andradóttir - wGrótta (Eyjólfur Garðarsson)

Í kvöld mættust Grótta og HK í Grill 66 deild kvenna á Seltjarnarnesi.

Leikurinn var gríðarlega þýðingarmikill og honum var beðið með mikilli eftirvæntingu.

HK stelpur byrjuðu betur í byrjun leiks í kvöld. En Grótta náðu að komast yfir eftir 8 mínútna leik. Eftir korter var staðan orðin 12-9 fyrir Gróttu. Þær héldu síðan áfram að vera alltaf ögn betri út allan fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik 18-16. Mikið skorað í fyrri hálfleik, mikið fjör og mikil læti.

Eftir rúmar 10 mínútur í seinni hálfleik náðu HK stelpur að komast yfir í stöðunni 20-21. Næstu 15 mínútur ca. var nánast jafnt á öllum tölum. Spennan var gríðarleg enda mikið í húfi. Seinustu 7-8 mínútur leiksins voru svo Gróttu stelpur bara mun sterkari og klókari og náðu að sigla góðum sigri í höfn. Lokatölur 31-27 fyrir Gróttu.

Grótta er því komið í toppsætið þegar aðeins örfáar umferðir eru eftir. Það er ljóst að klári þær sitt að þá fara þær upp í Olís deildina.

Hjá HK var Tinna Ósk Gunnarsdóttir frábær með 10 mörk. Markvarslan skilaði þeim 11 boltum.

Hjá Gróttu voru Karlotta Kjerúlf og Ída Margrét báðar með 9 mörk. 20 boltar varðir í kvöld frá þeim Andreu og Önnu Karólínu.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top