Þorsteinn Leó Gunnarsson (Hugo Segato / DPPI via AFP)
Íslendingarnir voru í eldlínunni um víða Evrópu í kvöld og gátu þeir allir fagnað sigrum með sínum liðum. Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk fyrir ONE Veszprém í 14 marka sigri liðsins á Ferencvaros á heimavelli í Ungverjalandi í kvöld, 43-29. Gasper Marguc var markahæstur í liði Veszprém með sex mörk. Veszprém er á toppi ungversku úrvalsdeildarinnar og virðast fátt geta stöðvað þá í enn einum deildarmeistaratitlinum í Ungverjalandi. Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur í liði Alkaloid í 21 marks sigri liðsins gegn HC Struga í Norður-Makedóníu í kvöld. Alkaloid hafði betur, 41-20 þar sem Monsi skoraði sjö mörk úr sjö skotum. Alkaloid eru áfram í 4.sæti deildarinnar, fimm stigum á etir Vardar sem er á toppi deildarinnar. Sveinn Jóhannsson og félagar hans í Chambéry unnu PAUC Aix í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld með tveimur mörkum 31-29 en Chambéry hafði fimm marka forskot í hálfleik 17-12. Chambéry er í 5.sæti deildarinnar með 19 stig, 12 stigum á eftir PSG sem er á toppi deildarinnar. Sveinn skoraði tvö mörk í leiknum í kvöld. Að lokum vann Porto tíu marka sigur á Vitora í Portúgal, 29-19 en staðan var 12-10 Porto í vil í hálfleik. Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur í liði Porto með fjögur mörk ásamt Pol Rovira, Daymaro Salina og Antonio Llamazares.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.