Markahæstu leikmenn Meistaradeildarinnar eftir 10. umferð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Orri Freyr Þorkelsson (Bo Amstrup/Ritzau Scanpix)

Meistaradeild Evrópu fer aftur af stað eftir langa pásu í dag og á morgun þegar 11.umferðin verður leikin. Fjórar umferðir eru eftir af riðlakeppni áður en útsláttarkeppnin hefst síðan.

11.umferðin hefst í dag með fjórum leikjum. Stórleikur fer fram í Póllandi þegar Kielce og Vezprém mætast klukkan 17:45 en á sama tíma er norðurlandalagur þegar Álaborg og Kolstad mætast.

Í Rúmeníu fær Dinamo Bucuresti þýsku meistarana í Fuchse Berlín í heimsókn og Magdeburg fær síðan GOG í heimsókn klukkan 19:45 í kvöld.

Handkastið hefur tekið saman tíu markahæstu leikmenn keppninnar eftir 10.umferðina.

  1. Elohim Prandi (PSG) - 84 mörk
  2. Mathias Gidsel (Fuchse Berlín) - 83 mörk
  3. Bjerre Frederik Friche (GOG) - 78 mörk
  4. Francisco Costa (Sporting) - 70 mark
  5. Melvyn Richardson (Wisla Plock) - 67 mörk
  6. Ómar Ingi Magnússon (Magdeburg) - 64 mörk
  7. Nedim Remili (Veszprem) - 62 mörk
  8. Aleix Gomez Abello (Barcelona) - 61 mark
  9. Orri Freyr Þorkelsson (Sporting) - 60 mörk
  10. Mario Sostaric (Pick Szeged) - 58 mörk

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top