Hvað verður um Bjarka Má eftir tímabilið?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bjarki Már Elísson (Ayman Aref / NurPhoto via AFP)

Landsliðsmaðurinn, Bjarki Már Elísson er á sínu fjórða tímabili með ungverska stórliðinu ONE Veszprém og verður samningslaus eftir tímabilið. Bjarki gekk í raðir Veszprém sumarið 2022 eftir níu ár í Þýskalandi þar sem hann lék með Eisenach, Fuchse Berlín og Lemgo.

Nú gæti hinsvegar verið komið að tímamótum hjá Bjarka Má í Ungverjalandi en samkvæmt heimildum Handkastsins ríkir óvissa um framtíð Bjarka Más á ferlinum.

Bjarki Már hefur lítið viljað tjá sig við Handkastið um stöðu mála hjá sér en sagði að hans mál væru í vinnslu.

Handkastið hefur heyrt í erlendum sérfræðingum sem hafa talað um margir samningslausir vinstri hornamenn í evrópskum handbolta væru á erfiðum stað við samningsborðið og væru margir vinstri hornamenn að leita sér af nýjum atvinnuveitanda þessa stundina.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top