Hafdís Iura - wVíkingur (Emma Elísa Jónsdóttir)
Í kvöld mættust Víkingur og HK í Safamýri í Grill 66 deild kvenna. Fyrsta korterið var tiltölulega mikið jafnræði með liðunum. Hart var barist og lítið var á milli liðanna. Eftir rúmlega 20 mínútna leik náði svo HK frábærum kafla og komst yfir í 7-12. Fóru þær svo inn í hálfleikinn með stöðuna 10-13 sér í vil. Í seinni hálfleik var þetta aldrei spurning. HK stelpur voru einfaldlega mikið mun betri aðilinn. Komust þær mest 6 mörkum yfir. Víkings stelpum vantaði trú á að geta veitt þeim alvöru mótspyrnu. Fór það svo að lokatölur urðu 23-28 fyrir HK. Sannfærandi og öruggur sigur hjá gestunum og lifir draumurinn ennþá um að þær vinni deildina en þá þurfa Gróttu stelpur að misstíga sig. Hjá Víking var Valgerður Elín með stórleik og setti 12 mörk. Markvarslan hjá Víking var ekki góð og aðeins 6 boltar klukkaðir í kvöld. Hjá HK var Danijela Sara með 11 bolta varða. Valgerður og Leandra voru markahæstar með 4 mörk. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 20% afslátt til 22. febrúar í tilefni Konudagsins í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.