FH stelpur með þriðja sigurleikinn í röð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

wFH - wVíkingur (Brynja T.)

Í kvöld mættust FH og Afturelding í Kaplakrika í Grill 66 deild kvenna.

FH stelpur tóku strax frumkvæðið í leiknum og voru hrikalega beinskeyttar í byrjun leiks. Komust þær fljótt í 5-1. Svo fóru þær í 8-3. Áfram mjötluðu þær inn mörkunum og Aftureldingar stelpur voru langt frá þeim. Í hálfleik var staðan 17-12. FH stelpur að leika mjög vel. Aftureldingar stelpur ekki alveg að ná að fylgja frábærum sigurleik hjá þeim í síðustu umferð.

Í seinni hálfleik var þetta bara einstefna. Aftureldingar stelpur köstuðu fljótt inn hvíta handklæðinu og játuðu sig sigraða að því er virðist. Mest náðu FH stelpurnar 15 marka forskoti. Lokatölur leiksins urðu 34-23. Aftureldingar stelpur geta mikið betur og fundu ekki fjölina sína í dag.

Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 8 mörk. Markvarslan skilaði þeim 9 boltum.

Hjá FH var Sonja Szöke með 14 bolta varða. Thelma Dögg Einarsdóttir skoraði 7 mörk.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 20% afslátt til 22. febrúar í tilefni Konudagsins í vefverslun Sage By Saga Sif.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top