Györ hendir í neyðarkaup – Ida Marie Dahl gengur til liðs við félagið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ida-Marie_JU9wb7VnHh (Ida Marie Dahl

Ungverska stórliðið Györi Audi ETO KC hefur tryggt sér danska landsliðslínumanninn Ida Marie Dahl, sem gengur til liðs við félagið með tafarlausum hætti og spilar með liðinu út tímabilið.

Samkvæmt dönskum miðlum keypti Györ Dahl út úr samningi hennar við Sønderjyske, þar sem hún hefur verið ein af lykilleikmönnum liðsins og hefur verið að spila vel undanfarið.

Þessi félagaskipti koma til vegna alvarlegrar stöðu hjá Györ þegar kemur að línumannastöðunni. Sænska landsliðskonan Linn Blohm sleit nýlega krossband, norska landsliðskonan Kari Brattset er ófrísk og Anna Lagerquist er enn í endurhæfingu eftir erfið meiðsli. Dahl kemur því inn sem brýn styrking og verður í fyrstu eini hreinræktaði línumaður liðsins.

Sjálf viðurkennir Dahl að tækifærið hafi komið henni á óvart.

„Það er draumur hvers leikmanns að klæðast ETO-treyjunni einn daginn og satt að segja hélt ég aldrei að þetta myndi gerast fyrir mig,“ segir hún á heimasíðu félagsins.

Hún segist jafnframt vera staðráðin í að nýta tækifærið hjá ríkjandi Evrópumeisturum.

„Ég er mjög stolt, ánægð og spennt að ganga til liðs við liðið á þessum tímapunkti. Þetta er gríðarlegt tækifæri og ég er tilbúin að gefa allt sem ég á það sem eftir er tímabilsins.“

Með félagaskiptunum fær Dahl tækifæri til að spreyta sig á hæsta stigi í Evrópu, á meðan Györ fær þá bráðnauðsynlegu breidd sem liðið hefur skort í baráttunni á mörgum vígstöðvum. Fyrir Sønderjyske þýðir þetta á sama tíma stórt skarð í miðju tímabili sem þarf að fylla sem fyrst.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top