Stjarnan gat ekki keypt sér mark á loka mínútunum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hanna Guðrún Stefánsdóttir - wStjarnan (Sævar Jónasson)

Eftir að hafa verið yfir í stöðunni 28-27 þegar tíu mínútur voru eftir af leik ÍBV og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna skoraði Stjarnan ekki mark í tæpar tíu mínútur. Það nýtti ÍBV sér og skoraði fjögur mörk í röð og voru skyndilega komnar með þriggja marka forskot.

Það fór svo að ÍBV vann leikinn 31-29 en ÍBV í mikilli toppbaráttu við Val á meðan Stjarnan er í harðri fallbaráttu við Selfoss.

,,Það var óvænt mótspyrna Stjörnunnar í Vestmannaeyjum. Það áttu alls ekki allir von á því," sagði Hörður Magnússon þáttastjórnandi Handboltahallarinnar sem sýnd er öll mánudagskvöld í Sjónvarpi Símans.

,,Þetta er svolítið svekkjandi því Stjarnan er í leik og yfir í seinni hálfleik og Stjarnan skorar ekki síðustu tíu mínútur leiksins nema þegar ein sekúnda var eftir af leiknum. Þær fara í 7 á 6 og taka tvö leikhlé á þessum kafla og reyna í rauninni allt. Varnarleikurinn hélt og það var allt fínt en þær gátu bara ekki keypt sér mark síðustu 10 mínútur leiksins. Það fer með leikinn," sagði Ásbjörn Friðriksson.

Stjarnan fær topplið Vals í heimsókn í 18.umferð Olís-deildar kvenna á morgun.

Umræðuna og loka mínútur leiksins er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top