Jónatan Magnússon KA/Þór (Eyjólfur Garðarsson)
Mikil spenna er í Olís-deild kvenna þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu. Valur er á toppi deildarinnar með 30 stig en ÍBV er einungis tveimur stigum á eftir Val. Valur er þó með betri innbyrðis stöðu gegn ÍBV og þyrfti ÍBV því alltaf að fara upp fyrir Val að stigum til að lenda fyrir ofan þær. Valur og ÍBV mætast í lokaleik deildarinnar en Valur hefur unnið báða leiki liðanna til þessa á tímabilinu. Rætt var um stöðuna í Olís-deild kvenna í síðasta þætti Handkastsins þar sem rætt var um að ÍR sem var á toppi deildarinnar í nóvember er núna tólf stigum á eftir toppliði Vals. ,,Allt í einu eru Haukar sem höfðu átt vonbrigðartímabil lengi vel í 5.-6. sætinu lengi vel komnar upp fyrir ÍR. Þær hafa skriðið hægt upp töfluna," sagði Arnar Daði Arnarsson. ,,Það kemur líka á óvart að KA/Þór er ekki lengra frá Fram og þær eru bara fjórum stigum frá 3.sætinu,” bætti Stymmi klippari við. KA/Þór á Hauka, ÍR, Val og Fram eftir af tímabilinu og eiga erfiðasta prógrammið eftir af þeim liðum sem eru í úrslitakeppnissætunum," bætti Stymmi klippari við áður en Kristinn Björgúlfsson bætti við að ef KA/Þór nær góðum úrslitum úr þessum fjórum leikjum sem þær eiga eftir þá gætu þær komið sér ofar. ,,Þetta snýst auðvitað um að sleppa við að mæta Val í undanúrslitum og kannski viltu bara lenda í 6.sætinu. 4. eða 5. sætið mætir Val í undanúrslitum sem er auðvitað galið. Það er galið að það sé betra að lenda í 6.sætinu heldur en 4. eða 5.sætinu," sagði Arnar Daði að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.