Díana Dögg Magnúsdóttir (FEDERICO GAMBARINI / AFP)
Díana Dögg Magnúsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í fyrri leik liðanna í komandi landsliðsverkefni sem framundan er. Íslenska landsliðið leikur tvo leiki gegn Svartfjallalandi í mikilvægum leikjum í undankeppni Evrópumótsins 4. og 8.mars. Arnar Pétursson valdi 18 manna leikmannahóp fyrir verkefnið. Fyrri leikur þjóðanna fer fram í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum miðvikudaginn 4.mars en sá seinni í Svartfjallalandi. Ísland er án stiga í riðlunum eftir tapleiki gegn Færeyjum og Portúgal en Svartfjallaland er á toppi riðilsins með fjögur stig. Ástæðan fyrir því að Díana Dögg getur ekki leikið fyrri leikinn er sú að hún er að fara í lokapróf í miðju landsliðsverkefni, föstudaginn 7.mars. ,,Ég þarf alltaf að vera á staðnum og það er ekki séns á að taka það annarsstaðar. Ég reyndi að færa það fram en það var ekki hægt í þetta skiptið þar sem þetta er síðasti prófdagur. Ef ég tek ekki prófið eða stenst það ekki þá má ég ekki skrifa mastersritgerðina mína á næstu önn svo það er ansi mikið undir í þesssu prófi," sagði Díana Dögg í sem stundar nám við flugvélaverkfræði samhliða því að leika með Blomberg Lippe bæði í þýsku úrvalsdeildinni og í Evrópudeildinni en með Blomberg Lippe leika einnig Elín Rósa Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen. Díana Dögg var í eldlínunni með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi sem fram fór í nóvember á síðasta ár. Ísland tapaði þar með níu mörkum gegn Svartfjallalandi í milliriðlum keppninnar, 27-36 en Svartfjallalandi tapaði gegn ríkjandi heimsmeisturum Noregs í átta liða úrslitum keppninnar 32-23. ,,Það er auðvitað fúlt að missa af fyrri leiknum og ég hefði auðvitað viljað leggja mitt af mörkum til að hjálpa liðinu á móti Svartfellingum. En því miður þá er staðan svona og engin sjúkrapróf í boði í skólanum heldur en vonandi er þetta bara síðasta prófið mitt í flugvélaverkfræðinni og þá þarf ekki að vera að púsla þessu öllu saman alltaf," sagði Díana Dögg að lokum í samtali við Handkastið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.