Landsliðshópurinn fyrir tvo leiki gegn Svartfjallalandi
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hafdís Renötudóttir (Ina FASSBENDER / AFP)

Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og Óskar Bjarni Óskarsson aðstoðarmaður hans hafa valið 18 manna leikmannahóp landsliðsins sem tekur þátt í tveimur leikjum gegn Svartfjallalandi í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer síðar á árinu.

Ísland mætir Svartfjallalandi á Ásvöllum miðvikudaginn 4.mars og síðan aftur ytra sunnudaginn 8.mars.

Athygli vekur að bæði Thea Imani Sturludóttir og Elísa Elíasdóttir leikmenn Vals eru í hópnum en þær hafa verið fjarri góðu gamni í liði Vals að undanförnu vegna meiðsla. Sara Dögg Hjaltadóttir leikmaður ÍR er í hópnum en hún var ekki í 35 manna lista Íslands fyrir heimsmeistaramótið sem fram fór fyrir áramót og var sú ákvörðun harðlega gagnrýnd.

Ísland er á botni riðilsins í undankeppninni fyrir EM án stiga eftir tvo leiki en Svartfjallaland er með fjögur stig. Portúgal og Færeyjar eru jöfn í 2. og 3. sæti riðilsins með tvö stig en þær þjóðir mætast tvívegis innbyrðis í þessum landsliðsglugga.

Markverðir

Hafdís Renötudóttir, Valur (77/5)

Sara Sif Helgadóttir, Haukar (21/0)

Aðrir leikmenn

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Fram (16/11)

Andrea Jacobsen, Blomberg-Lippe (66/116)

Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (19/44)

Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (72/97)

Elín Klara Þorkelsdóttir, Sävehof (33/119)

Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (38/78)

Elísa Elíasdóttir, Valur (29/26)

Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (20/27)

Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (34/35)

Lovísa Thompson, Valur (37/70)

Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (7/1)

Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (10/6)

Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (45/185)

Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (3/12)

Thea Imani Sturludóttir, Valur (98/224)

Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Valur (54/88)

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top