Var ekki á 35 manna listanum fyrir 112 dögum síðan – Nú í 18 manna hóp
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sara Dögg Hjaltadóttir (Sævar Jónasson)

Arnar Pétursson tilkynnti í morgun 18 manna leikmannahóp sinn sem tekur þátt í tveimur leikjum gegn Svartfjallalandi í undankeppni Evrópumótsins sem fram fer síðar á þessu ári. Ísland er án stiga í riðlinum eftir tvo leiki en Svartfjallaland er með fullt hús stiga.

18 manna hópur Íslands fyrir komandi verkefni.

Ísland mætir Svartfjallalandi á Ásvöllum miðvikudaginn 4.mars og síðan aftur ytra sunnudaginn 8.mars. Ísland og Svartfjallaland mættust í milliriðli heimsmeistaramótsins á síðasta ári en þar hafði Svartfjallaland betur 36-27.

Athygli vekur að í hópnum hjá Arnari Péturssyni er Sara Dögg Hjaltadóttir leikmaður ÍR sem hefur slegið í gegn í Olís-deildinni hingað til í vetur en Arnar var harðlega gagnrýndur fyrir að nafn hennar hafi ekki verið á 35 manna lista hans fyrir heimsmeistaramótið fyrir áramót.

Sá listi var kynntur 29. október en nú 112 dögum síðar er Sara Dögg mætt í 18 manna lokahóp Íslands.

Leikmenn sem voru á 35 manna lista Arnars Péturssonar í lok október og eru ekki í 18 manna hópnum að þessu sinni og leika sömu stöðu og Sara Dögg eru meðal annars, Embla Steindórsdóttir, Inga Dís Jóhannsdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir allar leikmenn Hauka og þess var Katla María Magnúsdóttir leikmaður Holstebro í Danmörku í 35 manna listanum en er ekki í 18 manna hópnum í komandi verkefni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top