Snorri Steinn ræðir Sviss leikinn – Lentum í miklu mótlæti
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Óðinn Þór Ríkharðsson (JOHAN NILSSON / TT NYHETSBYRÅN / TT News Agency via AFP)

Snorri Steinn Guðjónsson og íslenska landsliðið fékk á sig mikla gagnrýni eftir jafntefli liðsins gegn Sviss í milliriðli Evrópumótsins í janúar eftir frábæran sigur gegn Svíþjóð í leiknum á undan.

Snorri Steinn Guðjónsson var gestur í Handkastinu á dögunum þar sem farið var yfir Evrópumótið og þar var að sjálfsögðu farið yfir vonbrigðin gegn Sviss og frammistöðu liðsins í þeim leik. Snorri var spurður út í gagnrýnina sem landsliðið fékk eftir jafnteflið og spurður að því hvernig væri hægt að útskýra þær sviptingar sem íslenska landsliðið bauð upp á í janúar. Að vinna Svíþjóð á þeirra heimavelli með átta mörkum og í það að gera jafntefli gegn Sviss í næsta leik?

,,Ég er ekkert að reyna útskýra það og legg það ekkert í vana minn að svara einhverri einstakri gagnrýni. Þegar ég hætti þá mun ég segja mína skoðun á þessu og geri það á minn hátt. Frammistaðan var klárlega ekki nægilega góð en mín upplifun þarna er að við vorum mjög lélegir varnarlega og sveiflurnar klárlega of miklar. Ef við ætlum að vera lið að berjast í undanúrslitum á stórmótum þá þurfum við að laga það. En þarna upplifi ég sama og í Ungverjaleiknum. Ég hugsaði að þetta yrði bara svona leikur. Mér fannst við alltaf skora og við fengum færi eftir færi eftir færi og markvarslan lítil. En þarna náum við ekki að stoppa í götin en á sama tíma finnst mér Sviss liðið mjög gott. Mér finnst Andy Schmid frábær þjálfari og það er vit í því sem þeir eru að gera.”

,,Hvort að menn hafi verið eitthvað hátt uppi eftir sigurinn á Svíþjóð, það getur vel verið.”

Einhverjir vildu meina að Sviss hafi verið tólfta besta liðið af þeim tólf liðum sem voru í milliriðli Evrópukeppninnar.

,,Það getur vel verið. En þegar þeir voru góðir þá voru þeir mjög góðir og síðan duttu þeir niður inn á milli. En ég ætla ekki að sitja hérna og segja að þetta sé  eitthvað lið sem við eigum ekki að vinna. Við eigum bara að vinna þá og við vorum komnir í þá stöðu í riðlinum að þetta var undir okkur komið. Það voru vonbrigði að ná því ekki en þegar ég lít til baka þá lentum við í miklu mótlæti og þarna er draumur manna að fjarlægast og eftir á finnst mér mikið kraftaverk að koma okkur í þá stöðu að geta unnið leikinn í lokasókninni. Það er eitt af því sem ég tek úr leiknum líka. Við eigum hinsvegar að vera það góðir að við eigum að geta komið í vegfyrir það að vera í þeirri stöðu.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top