Haukar kjöldrógu nýliðana fyrir norðan
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sara Sif (Sævar Jónasson)

Haukar fóru norður og mættu þar nýliðum KA/Þórs í fyrsta leik 18.umferðar Olís-deildar kvenna. Til að gera langa sögu stutta þá vann Haukar öruggan og þægilegan ellefu marka sigur 20-31 eftir að hafa verið 13-15 yfir í hálfleik.

KA/Þór skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks og minnkaði muninn í eitt mark en þá komu fjögur mörk Hauka í röð og þær breyttu stöðunni í 14-19. Eftir það var ekki aftur snúið og voru Haukar allt í einu komnar tíu mörkum yfir í stöðunni 15-25.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var markahæst í liði Hauka með níu mörk og Inga Dís Jóhannsdóttir og Rakel Oddný Guðmundsdóttir komu næstar með fimm mörk hvor. Sara Sif var með átta varin skot í marki Hauka, 32% markvarsla.

Hjá KA/Þór var Susanne Pettersen markahæst með fimm mörk úr 13 skotum og Lydía Gunnþórsdóttir og Trude Håkonsen skoruðu fjögur mörk hvor. Bernadett Leiner varði sjö skot og Ástrós Bender tvö.

Með sigrinum heldur Haukar 3.sætinu sama hvað gerist í næstu leikjum umferðarinnar en KA/Þór er áfram í 6.sætinu með 15 stig, tveimur stigum á eftir Fram sem fær ÍR í heimsókn á laugardaginn.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top