Dagur kynntur sem nýr þjálfari HK
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dagur Snær Steingrímsson (HK handbolti)

Dagur Snær Steingrímsson hefur verið kynntur sem nýr þjálfari kvennaliðs HK en Handkastið greindi frá því í síðustu viku að Dagur myndi taka við kvennaliði HK af Hilmari Guðlaugssyni.

HK staðfesti þær fregnir á samfélagsmiðlum sínum nú í kvöld. Þar segir að hann taki til starfa í júní.

Dagur Snær kemur til HK frá Val þar sem hann hefur verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna en hefur einnig þjálfað yngri flokka félagsins. Hann hefur einnig komið að þjálfun yngri landsliða Íslands. Hann var hinsvegar ekki í neinum störfum hjá Val á þessu tímabili.

,,Mikil ánægja ríkir í HK með að fá Dag Snæ til okkar. Hann býr yfir yfirgripsmikilli reynslu við þjálfun og kemur til með að styðja við það markmið HK að koma lið meistaraflokks kvenna í fremstu röð. Kvennalið HK er sem stendur í öðru sæti í Grill66 deild kvenna og hefur stefnt að því að spila Olís deildinni á næsta tímabili. HK hefur verið að byggja upp ungt og öflugt kvennalið og það verður hlutverk Dags Snæs að leiða þessa vinnu á næstu þremur árum," segir í tilkynningunni frá HK.

HK er í 2.sæti Grill66-deildarinnar eftir tap gegn Gróttu í síðustu umferð og þurfa nú að treysta á að Grótta misstígi sig á lokasprettinum til að tryggja sér beint sæti í Olís-deildinni á næsta tímabili.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top