Birna Berg Haraldsdóttir (Sævar Jónasson)
Einum leik er nýlokið í Olís deild kvenna en ÍBV fékk Selfyssinga í heimsókn til Vestmannaeyja í leik sem var ljúka. Heimstúlkur voru alltaf með yfirhöndina í dag og voru yfir í hálfleik 16-13. Heimastúlkur héldu áfram í síðari hálfleik og landaði liðið að lokum fimm marka sigri, 31-26 og ÍBV heldur í topplið Vals. Sandra Erlingsdóttir var stórkostleg og skoraði tíu mörk fyrir ÍBV í dag. Birna Berg Haraldsdóttir skoraði sex og Alexandra Ósk Viktorsdóttir fimm. Aðrar skoruðu minna. Marte Syverud var atvkæðamest í liði gestanna með tíu mörk. Eva Lind Tyrfingsdóttir skoraði þá fimm og aðrar minna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.